Um okkur

Sérhæfð sjúkraþjálfun í Kópavogi — síðan 2008.

Klíník sjúkraþjálfun hóf starfsemi í Bæjarlind 14–16 í Kópavogi í september 2008. Við sérhæfum okkur í greiningu og meðhöndlun stoðkerfiseinkenna og vinnum eftir gagnreyndum aðferðum sem eiga sér viðurkenndan fræðilegan grundvöll.

Klíník sjúkraþjálfun í Bæjarlind, Kópavogi

Opnunartími

Mán–fim: 08:00–17:00
Föstudagur: 08:00–16:00

Hvernig kemst ég í tíma hjá Klíník?

Til að komast í sjúkraþjálfun er æskilegt að hafa beiðni frá lækni en þess er ekki endilega þörf strax frá upphafi. Hægt er að ná beint inn með því að hringja í síma 445 4404 eða panta tíma á netinu.

Panta tíma á netinu

Hvernig er fyrsti tími?

Fyrsti tími hjá sjúkraþjálfara Klíník fer í að greina stoðkerfisvandamálið og setja upp meðferðaáætlun. Í framhaldinu tekur við meðferðatímabil þar sem unnið er með stoðkerfisvandamálið — og æskilegt er að skjólstæðingar taki virkan þátt í meðferðinni frekar en að vera passífir. Rannsóknir sýna að betri árangur næst þegar skjólstæðingar vinna með sjúkraþjálfara.

Kynnstu starfsfólkinu

Hjá Klíník starfa sex sérmenntaðir sjúkraþjálfarar með framhaldsmenntun í handbrögðum og stoðkerfismeðferð, auk móttökuritara.

Merki Félags sjúkraþjálfara

Fagleg aðild

Aðili að Félagi sjúkraþjálfara

Sjúkraþjálfarar Klíníkur eru allir löggiltir og starfa samkvæmt starfsleyfi embættis landlæknis. Klíník er aðili að Félagi sjúkraþjálfara (FS), fagfélagi sjúkraþjálfara á Íslandi, og starfar eftir siðareglum þess.

Aðild að FS er trygging fyrir því að þjónustan sé veitt af menntuðum fagaðilum sem uppfylla ströngustu kröfur um menntun, endurmenntun og gagnreynda starfshætti.

Nánar á sjukrathjalfun.is

Aðstaða

Tækja- og æfingasalur Klíníkur

Bjartur og rúmgóður salur með úrvali af styrktar- og þolþjálfunartækjum, lausum lóðum og æfingasvæði — nýttur bæði í endurhæfingu undir handleiðslu sjúkraþjálfara og til sjálfstæðra æfinga.

Tækja- og æfingasalur Klíníkur í Bæjarlind